Demókratar á Bandaríkjaþingi sökuðu Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, í gær um að stunda „yfirhylmingu“ með Epstein-skjölin og breyta dómsmálaráðuneytinu í „tól hefndar“ fyrir Donald Trump forseta. Bondi, sem bar vitni fyrir dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar, varði meðferð ráðuneytisins á birtingu Epstein-skjalanna og sagði að „rannsóknir væru í gangi“ í málinu, en áður hefur Alríkislögreglan (FBI) gefið út að ekki séu nægar sannanir...