Vill setja fern markmið í aðgerðaáætlun gegn offitu

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur kynnt tillögu að þingsályktun um drög að aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi sem vinna ætti næstu fimm árin. Fjórum markmiðum er lýst í því sem ætti að verða framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu gegn offitu. Eitt er að efla forvarnir og draga úr nýgengi og þróun offitu, sérstaklega meðal ungs fólks. Undir það fellur að vinna gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum. Stefna á að því að offita meðal barna verði ekki lengur hæst á Norðurlöndum, meðhöndla offitu líkt og aðra langvinna sjúkdóma og bjóða upp á fjölbreytt og fagleg meðferðarúrræði. Í greinargerð með tillögunni segir að 59 prósent Íslendinga séu í ofþyngd eða með offitu og 26 prósent barna. 22 prósent fullorðinna eru með offitu og sjö prósent barna. Tíðni offitu er sögð ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans þar sem fjöldi tilfella hafi farið hratt vaxandi á undanförnum áratugum.