Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir samdi við sænska knattspyrnufélagið Hammarby í Stokkhólmi í síðasta mánuði og sneri þar með aftur til Svíþjóðar eftir hálfs árs dvöl í Portúgal. Þar lék hún með Braga í efstu deild en aðstæðurnar þar hentuðu henni ekki og ákvað hún því að rifta samningi sínum í lok síðasta árs.