Sjálfstraustið sneri aftur eftir hárígræðsluna

„Þetta er eitt það besta sem ég hef gert,“ sagði einkaþjálfarinn Stefán Barði Kristjönuson í Morgunútvarpinu á Rás 2. Íslenskir karlmenn hópast nú í hárígræðslur til Tyrklands en aðgerðirnar hafa verið svo áberandi að þær fengu eftirminnilegt pláss í síðasta Áramótaskaupi. Stefán mætti í Morgunútvarpið til að segja okkur hvernig lífið er nokkrum mánuðum eftir hárígræðslu og dró ekkert undan. Hlustaðu á viðtalið við Stefán í spilaranum hér fyrir ofan. Stefán sagðist hafa öðlast meira sjálfstraust í kjölfarið á hárígræðslunni og bætir við að hárleysið hafi haft meiri áhrif en hann áttaði sig á. „Þetta var farið hafa mikil áhrif á sálarlíf mitt,“ sagði hann. Morgunútvarpið er á Rás 2 milli klukkan 7 og 9 alla virka morgna.