Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu

Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, hefur sett íbúð sína að Laugavegi 5 á leigu og er að flytja í Fljótshlíðina til kærustu sinnar, Helenu Hansdóttur Aspelund. Eftir átta ár hjá Þjóðskrá er hann hættur þar og hefur störf í Grunnskólanum á Hellu sem leiðbeinandi og ritari.