Fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn landskunni, Ómar Ragnarsson, heimsótti helstu þjóðsagnapersónu innanlandsflugsins, Þórólf Magnússon flugstjóra. Saman rifjuðu öldungarnir upp gamlar flugsögur, eins og þegar þeir flugu að vetrarlagi norður í land á lítilli einshreyfils flugvél með Flosa Ólafsson leikara skelkaðan í aftursætinu.