Greiningardeild Íslandsbanka spáir 4,9 prósenta verðbólgu í febrúar. Það er nokkuð minna en verðbólgan í janúar sem var 5,2 prósent. Það var mesta verðbólga í sextán mánuði. Greiningardeildin birtir nokkurra mánaða spá á vef sínum. Hún gerir ráð fyrir að verðbólgan stökkvi í 5,2 prósent í næsta mánuði en verði 4,5 prósent í apríl og maí. Þegar litið er lengra fram í tímann gerir greiningardeildin ráð fyrir því að verðbólga verði að jafnaði 4,3 prósent í ár. Höfuðstöðvar Íslandsbanka.RÚV / Ragnar Visage