Úkraínski magasleðakeppandinn Vladyslav Heraskevych hefur verið dæmdur úr leik á Vetrarólympíuleikunum og fær ekki að taka þátt í keppni dagsins. Ástæðan er hjálmur sem hann hefur viljað bera í keppninni. Hjálmurinn sem um ræðir sýnir myndir af úkraínsku íþróttafólki sem hefur fallið eftir innrás Rússa í Úkraínu. Heraskevych hefur notað hjálminn á æfingum til þessa og var í kjölfar þeirra tilkynnt af fulltrúa Alþjóðaólympíunefndarinnar, IOC, að hann mætti ekki nota hann í keppni. Heraskevych hélt þó áfram að æfa með hjálminn og eftir að hafa neitað að skipta um hjálm fyrir keppni dagsins var honum vísað úr keppni. Í tilkynningu frá IOC segir að „ákvörðunin fylgi ákvörðun hans um að neita að fara eftir reglum IOC um tjáningu íþróttafólks.“ Hann hefur sjálfur sagt að hjálmurinn brjóti ekki gegn 50. grein reglna IOC um bann við pólitískum skilaboðum. Hjálmurinn ýti ekki undir mismunun á vettvangi leikanna heldur sé tilgangurinn einungis að minnast látins íþróttafólks. Heraskevych er fyrsti úkraínski keppandinn til að keppa á magasleða en hann er nú á sínum þriðju Ólympíuleikum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann hefur tjáð sig um ástandið í Úkraínu á Ólympíuleikum því í Beijing 2022 mætti hann með skilti sem á stóð „Ekkert stríð í Úkraínu“. Þá sagði IOC að birting skiltisins hefði engar afleiðingar þar sem það væri einfaldlega almennt ákall um frið. Innrás Rússa hófst fjórum dögum eftir að leikunum í Beijing lauk. Heraskevych, sem er 27 ára, hefur náð ágætis árangri undanfarið og varð til að mynda í fjórða sæti á heimsmeistaramótinu á síðasta ári.