Ingunn Lára býður í partý

Doddi stjórnar Partýverkunum á föstudagskvöldum á Rás 2. Í þættinum spilar hann samkvæmissmelli síðustu áratuga og reynir að koma hlustendum í réttu stemninguna fyrir helgina. Í hverjum þætti koma gestir og taka þáttinn yfir síðasta hálftímann. Það geta bæði verið plötusnúðar sem bjóða upp á gæða dansiballasyrpu eða þjóðþekkt fólk sem gerist útvarpsfólk, oftast í fyrsta skipti, í góðan hálftíma og spilar tónlist úr partýsafni sínu. DJ Plötusnúður hefur skilað syrpu, Herbert Guðmundsson bauð í partý á dögunum og á föstudaginn býður Rúnar Örn Rafnsson upp á glæsilega dansiballasyrpu. Rúnar gerði garðinn frægann í Sjallanum og Krúsinni á Ísafirði með vini sínum Víði í hinu goðsagnakennda dúói Rúnar og Víðir.