Smyril Line uggandi vegna hafnaráforma í Þorlákshöfn

Áform í samgönguáætlun og aðgerðaáætlun til næstu fimm ára um að fresta framlögum til hafnaruppbyggingar í Þorlákshöfn koma verulega á óvart, segir Óskar Sveinn Friðriksson, forstjóri Smyril Line á Íslandi, í umsögn fyrirtækisins til Alþingis. Hann segir að fyrirhuguð frestun framlaga frá 2026 til 2029-2030 og lægri hlutur ríkisins í kostnaði sé stefnubreyting sem brjóti með alvarlegum hætti gegn réttmætum stuðningi stjórnvalda við uppbyggingu fullnægjandi hafnaraðstöðu. Framlög til uppbyggingar hafnaraðstöðu í Þorlákshöfn er annað tveggja atriða sem Smyril Line finnur að í samgönguáætlun. Hitt er að göng um Fjarðarheiði verði ekki að veruleika. Óskar Sveinn segir að lokanir vegarins hafi lengi skapað öryggisvandamál fyrir farþega og gert fyrirtækinu ómögulegt að halda uppi heilsárssiglingum með ábyrgum hætti. Smyril Line hóf siglingar til Þorlákshafnar 2017. Í umsögn fyrirtækisins segir að það komi verulega á óvart að hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn verði seinkað fram á seinni hluta fimm ára aðgerðaáætlunarinnar. „Tvö ný skip, sérstaklega hönnuð fyrir siglingar til Þorlákshafnar, eru nú í smíðum og áætlað er að þau verði afhent sumarið 2026. Þessar fjárfestingar voru gerðar á grundvelli skýrs skilnings, sem byggði á samtali við sveitarfélagið Ölfus, um að hafnaraðstaða yrði uppfærð til að geta tekið á móti nýju skipunum. Skipin eru byggð samkvæmt ströngum nútímakröfum, með mun minni losun og bættum starfsskilyrðum fyrir starfsfólk.“ Óskar Sveinn segir að brotið sé gegn réttmætum væntingum Smyril Line um stuðning við uppbyggingu á fullnægjandi hafnaraðstöðu. Hann segir að lenging brimvarnagarðs, dýpkun hafnar og breytingar á leguköntum séu mikilvægar því núverandi hafnaraðstaða sé ófullnægjandi út frá öryggissjónarmiðum og geri fyrirtækinu erfitt fyrir að halda áætlunum, sérstaklega yfir vetrartímann.