Ný sælkeraverslun opnar í miðborginni í dag

Belinda Navi og Þorgerður Ólafsdóttir opna í dag Gróu Sælkeraverslun í Tryggvagötu 26 og setja jurtafæði í aðalhlutverk í miðborginni. Þar verður heitur hádegismatur, réttir til að taka með og hilla full af sælkeravörum með íslenskum framleiðendum í forgrunni.