Grípa þyrfti til aðgerða yrði hópslys

Heilbrigðisráðherra tekur undir áhyggjur starfsfólks bráðamóttöku Landspítala um stöðuna á deildinni. Gera þyrfti ráðstafanir ef hópslys yrði. Starfsfólk bráðamóttöku sem er í fimm stéttarfélögum sendi frá sér ályktun eftir fund í gær þar sem staðan á deildinni var til umræðu. Þar kemur m.a. fram að öryggi sjúklinga og starfsfólks þar er ógnað á degi hverjum og hvorki hægt að tryggja þar sýkingavarnir, brunavarnir né persónuvernd. Alma Möller heilbrigðisráðherra sendi þáverandi heilbrigðisráðherra ítrekuð minnisblöð í landlæknistíð sinni þar sem meðal annars kom fram að ástandið væri grafalvarlegt, reglugerðir væru ekki uppfylltar. Til dæmis kom fram í minnisblaði árið 2018 að við þetta ástand yrði ekki unað, reglugerðir væru ekki uppfylltar og ástandið sagt grafalvarlegt. Árið 2020 var lýst yfir alvarlegum áhyggjum og 2022 að ekki væri hægt að tryggja faglegar kröfur og réttindi sjúklinga á bráðamóttöku og réttast væri að loka henni. Sammála starfsfólkinu „Þetta er margþættur vandi sem hefur versnað yfir mjög langan tíma en svo kemur alltaf dropinn sem fyllir mælinn,“ segir Alma og nefnir tvær meginástæður. Annars vegar skort á hjúkrunarrýmum en á næstu mánuðum verður hjúkrunarheimili opnað í Ögurhvarfi. Hin ástæðan er húsnæði, en viðbygging við bráðamóttöku verður tilbúin í vor. „Að mínu viti hefði þurft að bregðast við hvorutveggja miklu fyrr en ég tel að við séum að gera allt sem hægt er, eins og sakir standa“ segir Alma. Ástandið er samkvæmt starfsfólki verra nú en nokkru sinni fyrr - ertu sömu skoðunar? „Já, það er alveg rétt.“ Aðgerðir á teikniborðinu Alma átti fund með Runólfi Pálssyni forstjóra spítalans í morgun. Spurð hvað þeim hafi farið á milli segir hún að þar hafi verið farið yfir stöðuna. „Við vorum að kynna fyrir forstjóra aðgerðir sem við höfum teiknað upp hér í ráðuneytinu. Þær eru þess eðlis að það er ekki hægt að upplýsa um hverjar þær eru en við í sameiningu erum að leita allra leiða.“ Myndi bráðamóttaka Landspítala ráða við hópslys í núverandi ástandi? „Það fer auðvitað eftir því hvenær það yrði. Því staðan sveiflast töluvert. En það þyrfti án efa þurfa að grípa til aðgerða, að útskrifa fólk hraðar.“