Háskólanemar efndu til mótmæla við aðalbyggingu Háskóla Íslands í hádeginu þegar háskólaráð hóf fund sinn. Þar átti að taka fyrir hækkun skrásetningargjalda við skólann. Hámark skráningargjalda opinberu háskólanna er bundið í lög heimilaði Alþingi hækkun þeirra fyrir jól. Gjöldin eru 75 þúsund krónur og hafa verið óbreytt í tólf ár. Þau væru 120 þúsund krónur ef þau hefðu hækkað í takt við verðbólgu. Tillagan í dag hljóðar upp á hækkun í 100 þúsund krónur. Ármann Leifsson, formaður Röskvu, sagði í hádegisfréttum RÚV að skrásetningargjöld væru ekki eins og hvað annað og fylgdu ekki vísitölu neysluverðs. „Síðast þegar skrásetningargjöldin hækkuðu þá hækkuðu þau oft á stuttu tímabili. Við í Röskvu erum gríðarlega hrædd um að það muni gerast núna og þar með skerða aðgengi að HÍ líkt og er nú þegar með einkaskóla eins og HR.“ Rektorar háskólanna hafa viljað hækka gjaldið í 180 þúsund krónur. „Þetta er kallað skrásetningargjald og það gefur til kynna að aðeins sé um að ræða kostnað við skrásetningu en það er sífellt fleira og fleira sem bætist við inn í gjaldið og stúdentar eru látnir dekka. Þetta er ekki á háskólunum sjálfum heldur er þetta sjúkdómseinkenni vanfjármögnunar ríkisins sem hefur staðið nú yfir í fjölda ára.“