Stuðningur við Úkraínu aðalmálið á fundi utanríkisráðherra NATO-ríkjanna

Stuðningur við varnir Úkraínu er aðalmálið á fundi varnarmálaráðherra ríkja Atlantshafsbandalagsins í Brussel, daginn eftir harðar loftárásir í Úkraínu. Bresk stjórnvöld tilkynntu í morgun styrk upp á hálfan milljarð punda fyrir loftvarnir í Úkraínu. „Í dag mun ég staðfesta að Bretland ætlar að leggja aukalega fram hálfan milljarð punda í bráðnauðsynlegar loftvarnir í Úkraínu,“ sagði John Healy, varnarmálaráðherra Bretlands í morgun, áður en ráðherrafundurinn hófst. Bretar ætla að verja hluta þessarar upphæðar í kaup á bandarískum loftvarnakerfum, en ætla einnig að senda loftvarnaflaugar sem framleiddar eru í Belfast, að því fram kemur í fréttatilkynningu sem gefin var út í morgun. Yfirlýsing Healys setur tóninn fyrir þennan fund varnarmálaráðherranna hér í Brussel; fund sem haldinn er daginn eftir harðar loftárásir Rússa á Kyiv og aðrar borgir í Úkraínu. Þessar árásir beindust að stórum hluta að orkumannvirkjum eins og gerst hefur á undanförnum vikum og mánuðum. Varnarmálaráðherra Þýskalands, Boris Pistorius, var enda ómyrkur í máli við fjölmiðlafólk í morgun. „Það sem við erum að horfa upp á í Úkraínu eru árásir Rússa sem hafa ekkert með hernaðaráætlanir að gera; þær eru einfaldlega hryðjuverk gagnvart almennum borgurum í Úkraínu,“ sagði Pistorius. „Þess vegna er nauðsynlegt að auka getu Úkraínumann til að verja sig; það er númer eitt og tvö á forgangslistanum og það ætlum við að tala um í dag.“ Sjálfum ráðherrafundinum lýkur innan skamms, og þá tekur við fundur ríkjahópsins sem fylkt hefur sér að baki Úkraínu. Sá hópur telur um fimmtíu ríki og er leiddur af varnarmálaráðherrum Þýskalands og Bretlands. Á fundinum verður einnig nýskipaður varnarmálaráðherra Úkraínu, Mykhailo Fedorov.