Kristrún Guðnadóttir keppti í seinni grein sinni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina í dag. Hún gekk þá í 10 kílómetra skíðagöngu en eftir að hafa komið í mark í 82. sæti var hún dæmd úr leik þegar í ljós kom að hún hafði sleppt brekku. „Ég vissi svo sem alveg að ég yrði dæmd úr leik. Þetta byrjaði fínt, ég var búin að ákveða að byrja frekar svona, ekki of hratt. Svo á hring tvö er ég orðin svolítið þreytt.“ Brautin sem skíðað var í var þrír mismunandi hringir og þrátt fyrir að hafa verið búin að fara vel yfir allt fyrir keppni tók Kristrún vitlausa beygju á öðrum hring og fór í beygjuna sem tilheyrði fyrsta hring. Þar af leiðandi sleppti hún einni brekku og þetta fattaði hún ekki fyrr en hún var komin út á þriðja og síðasta hringinn. Kristrún Guðnadóttir var dæmd úr leik í 10 kílómetra skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum fyrir að sleppa brekku. Þetta var seinni grein Kristrúnar á leikunum og hún hefur nú lokið keppni. Eftir að hafa talað við þjálfarann sinn ákvað Kristrún að skíða bara í mark þar sem hún hefði tapað um fimm mínútum, eða meira, á að fara til baka. „Mig langaði bara að fara í mark, þannig ég var bara brjáluð á síðasta hring, skíðaði örugglega hraðast þá. Ég á bara að keppa í sprettgöngum held ég, þetta er allt of flókið fyrir mig,“ segir Kristrún. Kristrún keppti í sprettgöngu á þriðjudag og hafnaði þar í 61. sæti af 89 keppendum í undankeppninni. Það var 13 sæta bæting frá síðustu Ólympíuleikum. „Mig langaði eiginlega bara að fara úr skíðunum og fara heim. Það er svo ógeðslega mikil vinna sem liggur á bak við þetta. Og svo bara fokkar maður þessu...Afsakið ég má ekki segja þetta í sjónvarpi, svo bara eyðileggur maður þetta allt af því maður nær ekki að taka rétta beygju.“ Kristrún segir svekkelsið svo ennþá meira af því vinnan sem hefur verið lögð í þetta undanfarið er mikil. „Ég er ekki búin að sjá eða hitta fjölskylduna mína liggur við í september og það er búið að gera allt rétt og bara ömurlegt að þetta endar svona. Ég ætla bara að taka daginn í dag og njóta með fjölskyldunni, kærustunni minni og tengdafjölskyldu og svo byrjum við bara að undirbúa HM á morgun.“