Aðgerðum innflytjendastofnunarinnar ICE í Minnesota er lokið. Þetta tilkynnti Tom Homan, yfirmaður innflytjendamála í Trump-stjórninni, fyrir skemmstu. Homan sagði að vegna aðgerðanna væri Minnesota nú ekki eins mikill griðarstaður glæpamanna og áður var. Hann kveðst hafa lagt til við Donald Trump Bandaríkjaforseta að ljúka aðgerðum í ríkinu og hann hafi verið samþykkur því. Á fimmta þúsund hafa verið handtekin í Minnesota síðan aðgerðir hófust. Íbúar Minnesota, ekki síst höfuðborgarinnar Minneapolis, hafa staðið fyrir fjöldamótmælum vegna veru ICE-liða ríkinu. ICE-liðar skutu minnst tvo bandaríska ríkisborgara til bana í aðgerðum sínum í Minnesota. Fréttin verður uppfærð.