Inspector Spacetime – People in the Video People in the Video, nýjasta smáskífa Inspector Spacetime, býður hlustendur velkomna í skýjabólstrað popp-ferðalag. Undanfarið hefur þríeykið komið fram á erlendri grundu á tónleikum og tónlistarhátíðum víða um Evrópu. Á dögunum vakti óbein heimsókn til Bandaríkjanna athygli þegar lag Inspector Spacetime heyrðist óma í auglýsingu tæknirisans Apple. Valgeir Skorri – frýs/flýt Lagið frýs/flýt frá Valgeiri Skorra er fyrsta lag af plötu sem er vinnslu sem fær fljótlega að líta dagsins ljós. Texti lagsins flakkar í tíma og fjallar eins og svo margt um ástina, dauðann og eilífðina. Lagið kom út 6. febrúar og Valgeir Skorri samdi, tók upp og spilaði. Undiraldan fimmtudaginn 12. febrúar Það var komið víða við í Undiröldunni þessa vikuna og ný íslensk lög sett á fóninn frá Kristmundi Axel og Bubba Morthens, Inspector Spacetime og fleirum. Rebekka Blöndal – Kannski Lagið Kannski er fjórði og síðasti söngull af væntanlegri plötu Rebekku Blöndal. Flytjendur lags eru eftirfarandi: Rebekka Blöndal syngur og leikur á ukulele; Steingrímur K. Teague leikur á píanó; Stefán Örn Gunnlaugsson tekur smá píanó einnig í laginu; Magnús Trygvason Eliassen leikur á trommur; Andri Ólafsson á kontrabassa; og Ari Árelíus á gítar. Andervel – Foxglove Andervel er verkefni tónlistarmannsins og tónskáldsins Jose Luis A Anderson Esquivel sem er búsettur á Íslandi og gerir indí-folk-tónlist með alþjóðlegri nálgun. Í hljómsveitinni Andervel hafa komið við tónlistarfólkið Elín Hall, Jóipé, Sóley og fleiri en hún er í dag skipuð þeim Sigurlaugu Thorarensen, Sólrúnu Mjöll og Sakaris Emil Joensen. Trausti Laufdal – Ekki í Reykjavík Lagið Ekki í Reykjavík er gamalt kántrílag frá Roger Miller sem ljóðskáldið Þór Stefánsson setti í íslenskan búning. Trausti Laufdal syngur og leikur á gítar og gítarhetjan Sigurgeir Sigmyndsson spilar á svokallaðan pedal-steel-gítar. Ekki í Reykjavík er partur af verkefninu Faðmlög sem að spannar tvær heilar plötur. Emil Andri Sigurgeirsson – The Message Tónlistarmaðurinn Emil Andri Sigurgeirsson hefur sent frá sér lagið The Message, sem hann lýsir sem sálarríku og draumkenndu. Sigurður Guðmundsson sér um bassa og hljóðgervla, Kristinn Agnarsson trommar og Daníel Friðrik Böðvarsson leikur á gítar. Andri Eyvinds – Krossgötur Flytjandi Krossgatna er Andri Eyvinds, sigurvegari jólalagakeppni Rásar 2. Þetta er sjötta lagið sem hann gefur út og hann segir fullt af öðrum lögum séu á leiðinni. Þetta er sólóverkefni og Andri sér um að spila, semja, taka upp og hljóðblanda allt efnið sjálfur. Undiraldan þriðjudaginn 10. febrúar Það var komið víða við í Undiröldunni þessa vikuna og ný íslensk lög sett á fóninn frá Kristmundi Axel og Bubba Morthens, Inspector Spacetime og fleirum. Kristmundur Axel, Bubbi Morthens – Kominn heim Tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel hefur sent frá sér lagið Kominn heim sem er uppgjör við erfiða æsku. Honum til aðstoðar við flutninginn er Bubbi Morthens en það var Þormóður Jónsson sem framleiddi. Sara Mjöll Magnúsdóttir – Van Buren Blues Jazzarinn Sara Mjöll Magnúsdóttir hefur sent frá sér lagið Van Buren Blues sem er eftir hana og er blúsaður jazz af plötunni A Place To Bloom. Sara Mjöll spilar á hammondorgel í laginu en Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar, Jóel Pálsson á tenórsaxafón, og Einar Scheving á trommur. HelgiT – Ampast upp Tónhylur er tónlistarklasi og samfélag í Árbæ sem sendir frá sér hvert lagið á fætur öðru sem fær frábærar viðtökur á vinsælustu veitu landsins Spotify og þar er lag HelgaT, Ampast upp, nýlegt dæmi. Kristjan Saenz – Í dag í nótt á morgun Úr Tónhyl kemur líka Kristjan Saesnz sem hefur eins og HelgiT átt góðu gengi að fagna á streymisveitunni sænsku en popplagið Í dag í nótt á morgun er hans nýjasta. Sleeping Giant – Conqueror Þá eru það svokallaðir aðrir sálmar því platan The Beauty of Obliteration inniheldur sex lög úr smiðju sveitarinnar Sleeping Giant. Sveitin lýsir tónlist sinni sem blöndu þungarokksstíla með rætur í dómsdagsmálmi og leðjumálmi. The Beauty of Obliteration var tekin upp í Stúdíó Paradís sumarið 2024, en feðgarnir Ásmundur Jóhannsson og Jóhann Ásmundsson sáu um hljóðblöndun. Yrja – In the Sadness of their Homes Við höldum áfram með rokk af þyngri tegundinni því dúettinn Yrja er næstur með lagið In the Sadness of their Homes sem er tekið af plötunni Basalt Towers. Lagið er eftir þá félaga Marek Stanislawczyk, Henry Barboza og Guðmund Óla Pálmason. Undiraldan lagalisti