Giséle Pelicot segist ekki hafa þekkt sjálfa sig á myndum sem eiginmaður hennar tók af henni þegar hann veitti tugum manna aðgang til að nauðga henni á meðan hún var undir áhrifum lyfja. Þetta kemur fram í viðtali við Pelicot, því fyrsta sem hún veitir síðan fyrrverandi eiginmaður hennar var dæmdur í 20 ára fangelsi. Mál Pelicot vakti heimsathygli þegar það kom upp. Eiginmaður hennar, Dominique Pelicot, játaði að hafa gefið henni deifilyf, nauðgað henni og fengið tugi annarra manna til að gera það sama. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi í desember 2024. Fimmtíu aðrir menn hlutu dóm í málinu, frá þremur upp í fimmtíu ár. Brot Pelicot stóðu yfir í tæpan áratug á heimili þeirra hjóna í þorpinu Mazan í Provence-héraði í Frakklandi. Hann tók nauðganirnar upp og geymdi í tölvunni sinni. Pelicot óskaði þess að réttarhöld yfir fyrrverandi eiginmanni hennar og öðrum sem nauðguðu henni yrðu öllum opin til að almenningur fengi að heyra um glæpina og hverjir hefðu framið þá. Caroline Darian, dóttir þeirra, hefur einnig kært föður sinn fyrir kynferðisofbeldi. „Hún var ekki með sál og lá hliðina á manni sem hún þekkti ekki“ Pelicot var í viðtali í sjónvarpsþættinum La Grande Librairie. Þetta er fyrsta viðtalið sem hún veitir síðan réttarhöldunum yfir fyrrverandi eiginmanni hennar lauk. Í viðtalinu lýsir hún andartakinu þegar hún sá fyrst myndirnar, sem eiginmaður hennar hafði tekið af henni meðvitundarlausri, á fundi með lögregluyfirvöldum. „Ég sagði: þetta er ekki ég. Þegar ég sá fyrstu myndina þá sagði ég: en þetta er ekki ég. Ég þekkti ekki þessa manneskju.“ Pelicot segir lögregluna hafa bent henni á að myndirnar hafi verið teknar í svefnherberginu heima hjá henni, „Þetta eru náttborðin þín, þetta eru lamparnir þínir.“ Pelicot segist hafa sett á sig gleraugun og séð líflausa konu liggjandi í rúminu sínu. „Hún var ekki lengur með meðvitund, hún var ekki lengur með sál og lá við hliðina á manni sem hún þekkti ekki. Ég held að á því augnabliki, heilinn minn rauf tengslin. Ég áttaði mig ekki á því hvað var verið að segja við mig, ég heyrði ekki lengur hvað var sagt við mig.“ Þáttastjórnandinn spurði Pelicot hversu lengi það hefði tekið hana að átta sig á því að þetta væri hún. Hún segir það hafa tekið fimm eða sex klukkutíma og að hún hafi ekki náð að meðtaka upplýsingarnar og átta sig á þeim fyrr en hún kom heim. Lögreglan ráðlagði henni að vera ekki ein heima, þar sem eiginmaður hennar var sá eini sem var í gæsluvarðhaldi á þeim tíma, tugir grunaðra léku enn lausum hala. „Síðan bað ég Sylvie vinkonu mína að koma og vera hjá mér. Ég sagði henni frá öllu þegar við settumst saman inn í stofu. Ég sagði henni að ég þyrfti að segja henni frá alvarlegu máli „Dominique nauðgaði mér og lét nauðga mér.“ Þetta var í fyrsta skipti sem ég hafði nokkurn tímann sagt orðið nauðgun.“