Tilkynna endalok stóraðgerða ICE í Minnesota

Stóraðgerðum innflytjendastofnunarinnar ICE og landamæravarða í Minnesota er lokið. Þetta tilkynnti Tom Homan, yfirmaður innflytjendamála í Trump-stjórninni, fyrir skemmstu. Homan sagði að vegna aðgerðanna væri Minnesota nú ekki eins mikill griðarstaður glæpamanna og áður var og aðgerðirnar í ríkinu því mjög árangursríkar. Homan kveðst hafa lagt til við Donald Trump Bandaríkjaforseta að ljúka aðgerðum í ríkinu og hann hafi verið samþykkur því. Homan kveðst ætla að verða áfram í Minnesota til að hafa yfirsýn með því þegar dregið verður úr aðgerðunum. Hann segir ICE munu áfram vera með viðveru í ríkinu, en þó í mun minna mæli. Á fimmta þúsund hafa verið handtekin í Minnesota síðan ákveðið var að senda tvö þúsund ICE liða og landamæraverði til ríkisins. Meðal þeirra eru börn og bandarískir ríkisborgarar. Íbúar Minnesota, ekki síst höfuðborgarinnar Minneapolis, hafa staðið fyrir fjöldamótmælum vegna veru ICE-liða ríkinu. ICE-liðar hafa skotið minnst tvo bandaríska ríkisborgara til bana í aðgerðum sínum í Minnesota. Fréttin hefur verið uppfærð.