Íslendingar setja milljarð í vopnakaup fyrir Úkraínu

Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu. Þetta verður gert í gegnum sérstakt verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins, þar sem vopn eru keypt frá Bandaríkjunum og send til Úkraínu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greindi frá þessu í viðtali við RÚV í dag, en hún sótti fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var í Brussel í morgun. Fjármagnið fer í gegnum verkefni á vegum NATO sem kallast PURL ( Prioritised Ukraine Requirements List ). Í gegnum þetta verkefni er miðað að því að uppfylla brýnar þarfir Úkraínumanna á herbúnaði og loftvörnum, með því að kaupa búnað frá Bandaríkjunum og senda þann búnað til Úkraínu. „Við erum auðvitað ekki að gera eins mikið og aðrar þjóðir, en við erum að uppfylla okkar skuldbindingar og erum að sýna fram á að við erum verðugur bandamaður,“ sagði Þorgerður Katrín í viðtali við RÚV fyrr í dag. „Við erum þannig að setja um átta milljónir bandaríkjadala, um milljarð króna í þetta PURL verkefni, sem virkar, og það virkar ekki síst fyrir Úkraínumenn, en um leið tryggir það líka, að mínu mati, að við höldum stuðningi Bandaríkjanna í þessu verkefni öllu.“ Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu í gegnum sérstakt verkefni á vegum NATO. Nánast öll aðildarríki NATO hafa tekið þátt í PURL verkefninu. Í morgun tilkynnti varnarmálaráðherra Svíþjóðar um þriðja stuðningspakkann af þessu tagi sem Svíar ákveða, og í morgun sömuleiðis sagði varnarmálaráðherra Breta að bresk stjórnvöld hafi ákveðið aukalega stuðning upp á hálfan milljarð punda; hluti af þeirri fjárhæð fer í PURL-verkefnið, til að borga fyrir bráðnauðsynlegar loftvarnir í Úkraínu.