Það kom til snarpra orðaskipta og upp úr sauð á einum tímapunkti þegar Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, svaraði fyrir meðferð ráðuneytisins á Epstein-skjölunum í gær. Hópur þolenda Epsteins var viðstaddur þegar dómsmálanefnd fulltrúaþingsins yfirheyrði Bondi. Í lok janúar birti bandaríska dómsmálaráðuneytið þrjár milljónir nýrra skjala tengdum kynferðisbrotamanninum Jeffrey-Epstein. Þingmenn demókrata hafa sagt valdamiklum og nafntoguðum mönnum hlíft með yfirstrikunum á meðan nöfn þolenda séu birt. Hér að neðan gefur að líta nokkur augnablik frá yfirheyrslunni á Bondi. Hækkaður rómur og fúkyrði á víxl einkenndu yfirheyrslu dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á Pam Bondi dómsmálaráðherra í gær. Þingmenn spurðu Bondi út í meðferð dómsmálaráðuneytisins á Epstein-skjölunum. Thomas Massie, þingmaður repúblikana, var með stækkað eintak af tölvupóstum máli sínu til stuðnings og benti sérstaklega á einn þar sem nafn lögmanns sem sendi póstinn hafði verið yfirstrikað. Þetta var póstur frá lögmanni þolenda með lista yfir nöfn þeirra en ekki var strikað yfir nöfn þolenda. „Þú gerðir bókstaflega það versta sem hægt var að gera fyrir þolendur. Þeir eru að fá símatöl og sumir vildu ekki að nafn sitt kæmi fram,“ sagði Massie. Hann spurði svo Bondi hver bæri ábyrgð á þessu og hvort hún gæti rakið hvaða einstaklingur hefði gert þetta. „Þetta var lagað innan 40 mínútna. Þú lætur eins og þetta hafi verið viljandi,“ svaraði Bondi og Massie greip þá fram í fyrir henni og vildi fá orðið aftur. Hann var minntur á að Bondi mætti svara. „Þú ert misheppnaður stjórnmálamaður“ Massie sagði að þetta hafi verið lagfært af því hann hefði gripið hana glóðvolga. Bondi gaf ekki mikið fyrir það og sagði hann haldinn Trump-þráhyggjuröskun. „Þú ert misheppnaður stjórmálamaður og þarft að fara að huga að því sem skiptir máli.“ Dan Goldman, þingmaður demókrata, vakti máls á því að undirmaður Bondi, Todd Blance varadómsmálaráðherra, hefði sagt í viðtali að allir þolendur sem vildu ræða við ráðuneytið væru vonandi búnir að því. Hópur þolenda var viðstaddur yfirheyrsluna og Goldman bað þau að rétta upp hönd sem hafi hitt fulltrúa dómsmálaráðuneytisins og lagt fram vitnisburð eða gögn. Enginn rétti upp hönd. Þá spurði hann hversu mörg hefðu reynt að hafa samband beint eða í gegnum lögmann. Öll réttu þau upp hönd. Að lokum spurði hann hversu mörgum hafi verið neitað um fund eða beiðnum ekki svarað og öll réttu þau aftur upp hönd. Hækkaður rómur og fúkyrði á víxl einkenndu yfirheyrslu dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á Pam Bondi dómsmálaráðherra í gær. Þingmenn spurðu Bondi út í meðferð dómsmálaráðuneytisins á Epstein-skjölunum. Það sauð upp úr þegar röðin kom að Beccu Balint þingmanni demókrata. „Já eða nei, hefur dómsmálaráðuneytið spurt Howard Lutnick [viðskiptaráðherra Bandaríkjanna] um tengsl hans við Epstein?“ Spurði Balint. Bondi svaraði með því að segja Lutnick sjálfan hafa rætt tengslin. Balint ítrekaði spurninguna og Bondi svarar eins. Skömmu síðar spyr Balint hvort forsetanum hefði verið kunnugt um tengslin þegar hann skipaði Lutnick ráðherra. „Chris Malin var landamæravörður sem var skotin og hún minntist aldrei á–,“ sagði Bondi og Balint greip fram í og sagðist draga þá ályktun að forsetinn hefði vitað af tengslunum þar sem þeir væru nágrannar. „Skammastu þín! Þú ert frá pínulitlu og fallegu ríki,“ sagði Bondi. Malin var skotinn í Vermont, ríkinu sem Balint er þingmaður fyrir. „Í guðanna bænum, þetta er sorglegt. Formaður, ég er ekki að spyrja erfiðra spurninga. Bandaríska þjóðin á rétt á svörum. Þetta eru hátt settir embættismenn í ríkisstjórn Trumps.“ Bondi talar þá um að enginn hafi spurt spurninga þegar Joe Biden eða Bill Clinton voru forsetar. Balint þykir það lélegur málflutningur. En þegar Bondi byrjar að tala um gyðingahatur og ýjar að því að Balint hafi kynnt undir það með atkvæðagreiðslu um eitthvað mál þá fýkur í hina síðarnefndu. „Ertu í alvöru að ræða gyðingahatur við manneskju sem missti afa sinn í helförinni? Í alvöru? Segir hún og gengur svo út úr salnum. Jerrold Nadler, þingmaður demókrata frá New York, spyr Bondi hversu marga af samverkamönnum Epstein hún hafi sótt til saka eða rannsakað. Þau grípa fram í fyrir hvort öðru um hríð og Bondi segir svo: „Þið sitjið hér og ráðist á forsetann og það sætti ég mig ekki við. Ég sit ekki undir þessu. Bandaríska þjóðin þarf að vita það að verið er að tala um Epstein núna en þetta mál hefur verið í gangi frá því Obama var forseti. Og þessi ríkisstjórn birti meira en þrjár milljónir skjala. Donald Trump undirritaði þessi lög og hann er sá forseti sem hefur sýnt mest gagnsæi í sögu Bandaríkjanna.“