Þrír starfsmenn Háskólans á Bifröst keyptu fasteignir af háskólanum við götuna Jaðarsel árið 2024. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, þáverandi rektor, keypti 110 fm þriggja herbergja parhús á einni hæð á rúmar 36 milljónir. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson kennari keypti 83,7 fermetra, þriggja herbergja íbúð á rúmar 26 milljónir króna. Helena Dögg Haraldsdóttir prófstjóri keypti 110 fermetra, fjögurra herbergja parhús á 33 milljónir. Þetta kemur fram í afsali fasteignanna. Samkvæmt ársreikningi Kiðár ehf., dótturfélags Háskólans á Bifröst, sem er skráð fyrir flestum fasteignum á svæðinu, voru fjórar íbúðir seldar árið 2024. Í rekstrarreikningi var tekjufærður söluhagnaður að fjárhæð 63 milljónir króna vegna eignasölunnar. Margrét Jónsdóttir Njarðvík var rektor Háskólans á Bifröst og einn þriggja stjórnarmanna í Kiðá þegar viðskiptin voru gerð. Á Bifröst er talsvert af byggingum, bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæði í eigu Kiðár. Óvissa hefur verið um framtíð byggðarinnar eftir að starfsemi háskólans var flutt þaðan. Í janúar 2025 voru allar skólabyggingar Háskólans á Bifröst ásamt kennara- og nemendaíbúðum settar á sölu. Þá var búið að selja þrjár fasteignir til starfsmanna háskólans. Kaupsamningar fyrir fasteignirnar voru dagsettir 18. mars 2024, 19. apríl 2024 og 1. ágúst 2024. Margrét segir að viðskiptin hafi verið með vitund og vilja stjórnar Kiðár, sem hún sat sjálf í ásamt Ársæli Harðarsyni og Valtý Guðmundssyni. „Já, þetta var allt eðlilegt. Fasteignirnar voru seldar á markaðsvirði þess tíma,“ segir Margrét. Tvær fasteignasölur hafi gert verðmat. Viðskiptin hafi farið fyrir stjórn Kiðár og skýrsla gefin út til stjórnar Háskólans á Bifröst. Háskólinn á Bifröst er sjálfseignarstofnun sem er nær alfarið fjármögnuð af íslenska ríkinu. Íslenska ríkið hefur leigt fasteignir á Bifrastarsvæðinu af Kiðá síðustu ár. Flóttafólk, meðal annars frá Úkraínu, hefur búið þar eftir að Ísland fór að taka á móti fólki þaðan. Margrét leigir út parhúsið sitt við Jaðarsel.