„Þetta er svo galið ástand“

„Þarna liggur fólk sólarhringunum saman og það nýjasta sem maður er að heyra er að fólk liggi þarna í upp undir tíu daga, á þessari bráðamóttöku sem hefur að ég held þrjár sturtur. Það eru þrjú klósett þar sem hægt er að fara með sjúkling í hjólastól eða rúmi. Þetta eru veikustu sjúklingar spítalans. Þetta er svo galið ástand,“ segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún og Anna Guðrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku, voru gestir í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Anna Guðrún bendir á að þetta sé stærsta bráðamóttaka landsins, hún sinni landinu og miðunum. „Við þurfum alltaf að hafa viðbragðið í lagi, við þurfum að geta tekið á móti þessu óvænta sem eru slysin. Við þurfum að vera alltaf tilbúin og við erum það ekki.“