Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni

Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að leigja hótelrými tímabundið til að létta undir með starfsemi bráðamóttökunnar. Rýmunum yrði ráðstafað til inniliggjandi sjúklinga á bráðamóttökunni sem bíða þess að fá pláss í öðrum úrræðum Landspítalans.