Ísland er í riðli með Búlgaríu, Eistlandi og Lúxemborg eða Möltu í Þjóðadeild karla í fótbolta. Liðið leikur í C-deild eftir fall úr B-deild. Leikirnir í Þjóðadeild fara allir fram í haust og leikið er í september, október og nóvember. Engu breytt hvaða lið við hefðum fengið Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var viðstaddur dráttinn í Brussel og ræddi við Knattspyrnusamband Íslands um niðurstöðuna. ,,Mér líst bara vel á þetta og hlakka til að takast á við verkefnið. Það voru ýmsar mögulegar útkomur og auðvitað áhugavert að velta því upp hvaða lið við hefðum getað fengið. En þegar allt kemur til alls þá snýst þetta bara um okkar lið og það sem við ætlum að gera í þessari keppni.“ ,,Við ætlum okkur aftur upp í B-deild, það er ekkert flóknara en það, og það hefði engu breytt hvaða lið við hefðum fengið, markmiðið hefði alltaf verið það sama.“ ,,Það er að koma fín mynd á prógrammið hjá okkur núna í vor, marsgluggann og svo júní, og við verðum klárir í Þjóðadeildarverkefnið í haust. Núna þarf KSÍ bara að fara að stilla upp miðasölu á þessa leiki og setja í gang, við þurfum að fá sem flesta á völlinn til að styðja við strákana,“ sagði Arnar.