Brotnaði hrottalega fyrir 10 mánuðum en skilaði gulli

Hin þrautreynda skíðakona Federica Brignona vann til gullverðlauna í bruni fyrir Ítalíu. Hún er á sínum fimmtu leikum en renndi blint í sjóinn eftir að hafa mölbrotið vinstri sköflung og slitið krossband í aprílbyrjun í fyrra. Það gerðist fyrir 10 mánuðum síðan en hún hefur náð algjörum bata og Brotið má sjá hér að neðan en það var hrikalegt og við vörum viðkvæma við áhorfi. Hin ítalska Federica Brignona vann til gullverðlaun í svigi á Vetrarólympíuleikunum. Hún mölbraut löppina og sleit krossband í apríl 2025 en náði undraverðum árangri. Þetta eru hennar fyrstu gullverðlaun á fimmtu Ólympíuleikum hennar. Þetta voru hennar fyrstu gullverðlaun á Ólympíuleikum. Næst á eftir henni kom Romane Miradoli frá Frakklandi og Cornelia Hütter frá Austurríki varð þriðja. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður á Tofane-brautinni í dag skilaði Brignone nákvæmri og hraðri keyrslu sem dugði til gulls. 17 ára vann hina þrautreyndu Kim Í hálfpípu kvenna varð keppni æsispennandi. Hin Bandaríska Chloe Kim höndlaði ekki pressuna undir lokin en hún gat tryggt sér gullið og datt. Kim hefði þar tryggt sér sín þriðju gullverðlaun í röð en það var því hin 17 ára suður-kóreska Gaon Choi sem tók gullið. Kim varð að sætta við silfur. Ono Mitsuki í Japan tók brons og hágrét í lokin eftir dramatíkina. Sænsk tvenna er Kristrún var dæmd úr leik Svíar áttu góðu gengi að fagna í 10 kílómetra göngunni en Frida Karlsson var langfyrst. Tæpum 47 sekúndum á eftir henni kom landa hennar, Ebba Karlsson. Jessie Diggins frá Bandaríkjunum fékk silfur og á eftir henni komu þrjár norskar göngukonur en 32 ár eru síðan Noregur vann ekki verðlaun í 10 kílómetra göngu kvenna. Kristrún Guðnadóttir var dæmd úr leik í keppninni fyrir að sleppa brekku. Þetta var seinni grein Kristrúnar á leikunum og hún hefur nú lokið keppni. Snjóbrettaat karla Austurríkismaðurinn Alessandro Haemmerle varð Ólympíumeistari í annað sinn í snjóbrettaati þegar hann sigraði eftir æsispennandi úrslit í Livigno, þar sem hann var með 0,03 sekúndna forskot á Kanadamanninn Eliot Grondin. Það eru svipaðar aðstæður og komu upp í Peking 2022 þegar aðeins 0,02 sekúndur skildu þá að. Keppnin var hröð og óútreiknanleg eins og við mátti búast í þessari grein. Jakob Dusek tryggði Austurríkismönnum bronsið. Tveir með jafna einkunn í hólasvigi Mikil dramatík ríkti í moguls-úrslitum karla, eða hólasvigi, þegar Ástralinn Cooper Woods tryggði sér Ólympíugull. Hann jafnaði kanadísku goðsögnina Mikaël Kingsbury að stigum, 83,71, en hafði betur á grundvelli beygjustiga, 48,4 gegn 47,7. Japanski heimsmeistarinn Horishima Ikuma vann brons með 83,44 stig, aðeins 0,27 stigum á eftir efstu mönnum, í úrslitum þar sem Woods stóðst gífurlega pressu sem síðasti keppandi. Kingsbury, sem er fjórfaldur Ólympíuverðlaunahafi, staðfesti að Milano Cortina 2026 yrðu hans síðustu Vetrarólympíuleikar.