Samanlagður hagnaður bankanna þriggja nærri 94 milljarðar króna

Samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, nemur nærri 94 milljörðum króna. Íslandsbanki birti uppgjör síðasta árs í dag. Þar kemur fram að arðsemi eigin fjár hafi verið 10,5 prósent í fyrra og að vaxtatekjur hafi aukist töluvert. Stjórn Arion banka leggur til arðgreiðslu sem nemur 11,5 krónum á hlut sem jafngildir 15,3 milljörðum króna. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum bankans var 30,6 milljarðir króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna 2024. Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða eftir skatta árið 2025 en það er hálfs milljarðs aukning frá árinu áður. Arðsemi eiginfjár var 11,6% samanborið við 12,1% árið áður. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að hagnaður bankanna endurspegli mjög sterka stöðu efnahagsmála en eitt stærsta vandamálið í íslensku viðskiptalífi sé skortur á samkeppni. „Og við vitum að skuldastaða bæði heimila og fyrirtækja er sögulega lág miðað við eignir og það hefur gengið mjög vel í íslensku efnahagslífi og það kemur fram í þessum tölum,“ Fram hefur komið að miklar gjaldahækkanir um áramótin voru högg fyrir heimilin, vextir hækka og þjónustutekjur bankanna hafa aukist. Mætti ekki nýta hagnað bankanna til að lækka þessi gjöld. „Jú við getum alveg verið sammála um það en það er nú einu sinni þannig að þetta eru fyrirtæki á samkeppnismarkaði og við vildum auðvitað að samkeppnin væri harðari og að meira af þessu myndi skila sér til neytenda.“ Samanlagður hagnaður bankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, var nærri 94 milljarðar króna í fyrra. Fjármálaráðherra vill sjá harðari samkeppni svo eitthvað af hagnaðinum skili sér til neytenda.