Tókust á um einokun áfengissölu

Á ríkið að vera með einokun á áfengissölu í forvarnarskyni? Ógnar tilkoma áfengisnetverslana þessu hlutverki ríkisins? Þessi umræða er ekki ný af nálinni en hún hefur verið fyrirferðarmikil undanfarna daga. Elías Blöndal Guðjónsson, annar eiganda áfengisverslunarinnar Santé, og Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, voru gestir í Kastljósinu í kvöld. Þau hafa skipst á skoðunum um áfengismálin með greinaskrifum undanfarið. Lýðheilsa og áfengisneysla Lára segir deilur þeirra snúast um það hvað sé lýðheilsa. „Lýðheilsa er í raun fræðigrein og starfsemi sem miðar að því að bæta og vernda heilsu samfélags, ekki bara sjúklinga. Þess vegna þurfum við alltaf að horfa á stóra samhengið,“ segir Lára. Hún segir áfengisforvarnir einn mikilvægasta forvarnarhluta lýðheilsu. Elíasi virðist umræðan á villigötum. „Lýðheilsufræðingar og aðrir talsmenn ÁTVR eru einfaldlega að blanda saman tveimur ólíkum hlutum: annars vegar því að óhófleg áfengisneysla geti valdið skaða, sem er algjörlega óumdeilt í málinu, og hins vegar hver á að selja áfengið og hver á að hafa það hlutverk,“ segir Elías. Hann segir langflesta eiga í heilbrigðu sambandi við áfengi þó að sumir eigi í erfiðleikum með áfengisneyslu. Lára G. Sigurðardóttir og Elías Blöndal Guðjónsson hafa skipst á skoðunum um áfengi og lýðheilsu undanfarna daga. Þau voru gestir í Kastljósi í kvöld og ræddu aðgengi að áfengi og áhrif þess á samfélagið. Vísa í rannsóknir með ólíkar niðurstöður Elías og Lára tókust meðal annars á um hvort rannsóknir sýni fram á að aðgengi að verslunum sem selji áfengi auki áfengisneyslu og önnur vandamál í samfélögum. Elías bendir á að hann hafi í greinum sínum vísað í fjölmargar ritrýndar fræðigreinar og rannsóknir sem hafa verið framkvæmdar á síðustu árum. Þær gefi til kynna að ekkert orsakasamhengi sé á milli fjölda áfengisútsölustaða og heildarneyslu. „Þú skalt spyrja alla lýðheilsufræðinga, lækna, faraldsfræðinga, hagfræðinga. Þetta er ekki rétt,“ segir Lára. Hún bendir á að í Alberta í Kanada á tíunda áratugnum hafi sjúkrahúsinnlagnir, krabbameinstilfelli, ofbeldi og dánartíðni aukist þegar einokun á áfengissölu var afnumin. „Þetta er það sem er kallað í fræðunum berjatínsla,“ segir Elías. „Hér er verið að velja verstu dæmin. Ég hef teflt fram öðrum dæmum, til dæmis frá Bandaríkjunum, Washington og Pennsylvaniu, þar sem áfengissala var gefin frjáls, vínbúðum fjölgaði gífurlega, fjöldinn margfaldaðist. Hver var niðurstaðan? Jú, hún var sú að neyslan jókst ekki.“