Væri búið að loka ef þetta væri ekki bráðamóttaka

„Við erum komin á það stig núna að það verður að grípa inn í. Það hefði náttúrlega þurft að gera það fyrr,“ segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala. Hann segir að staðan hafi hríðversnað síðustu vikur. „Sérstaklega hvað varðar fjölda einstaklinga sem vistast á spítalanum sem við getum ekki útskrifað að lokinni meðferð. Hann hefur aukist um meira en 30 á 6-7 vikum.“ Í viðtali við fréttastofu í fyrradag, þriðjudaginn 10.2. sagði Runólfur að á Landspítala lægju 110 sem hefðu lokið meðferð. Og síðan þá hefur fjölgað í þeim hóp. „Þeir eru 122 í dag,“ segir Runólfur. Ef um væri að ræða einhverja aðra starfsemi, þá væri búið að loka henni segir forstjóri Landspítala um ástandið á bráðamóttöku. Rætt hefur verið um að gera hlé á stórum hluta skurðaðgerða til að búa til legurými. Væri búið að loka ef þetta væri einhver önnur starfsemi Á fjölmennum fundi stéttarfélaga starfsfólks bráðamóttöku í gær kom fram að öryggi væri ábótavant á deildinni, þar væri hvorki hægt að tryggja sýkingavarnir, brunavarnir né persónuvernd. „Ég held að allt sem þar var sagt hafi verið satt og rétt,“ segir Runólfur. Ef um væri að ræða einhverja aðra starfsemi, einhvern annan vinnustað - væri ekki bara búið að loka? „Alveg örugglega. Gallinn er bara sá að við getum ekki lokað bráðamóttökunni.“ Runólfur átti fund um stöðu bráðamóttöku með Ölmu Möller heilbrigðisráðherra í morgun. Þar kom fram að 17 hjúkrunarrými verða opnuð á næstu dögum fyrir fólk af spítalanum. „En það er engan veginn nóg. Ég kallaði fyrir tæpri viku síðan eftir 50 rýmum, sem væri algert lágmark í því efni. Ég held að það sé orðið hærra núna í ljósi þeirrar þróunar sem við höfum séð síðustu daga.“ Var heilbrigðisráðherra á ykkar fundi í morgun með einhverjar tillögur sem gætu orðið að veruleika á næstu vikum? „Það voru ræddar lausnir, sem gætu orðið að veruleika og voru af hálfu ráðuneytisins. En ég er ekki tilbúinn að tjá mig um þær á þessu stigi.“ Lausnin þarf að vera skjótvirk Það er niðurskurðarkrafa á Landspítala - 4-5 milljarðar - var rætt um að hverfa frá henni á ykkar fundi? „Við ræddum ekkert rekstur spítalans í morgun.“ Ef þú ættir að nefna einhverja lausn í fáum setningum fyrir bráðamóttöku Landspítala - hver væri hún? „Hún þarf að vera skjótvirk og það þýðir bara það að við þyrftum að flytja héðan 70 einstaklinga í viðeigandi rými fyrir þeirra þarfir.“ Hafa skoðað að fresta aðgerðum Það sem af er þessu ári hefur þurft að fresta 29 sérhæfðum skurðaðgerðum vegna skorts á legurýmum og í fyrra var 123 aðgerðum frestað af sömu ástæðu. „Við veljum auðvitað aðgerðir þar sem er ekki lífshætta yfirvofandi en auðvitað getur þetta komið niðri á heilsu fólks og þetta er óviðunandi, en ein af þeim lausnum sem hafa verið lagðar til innan spítalans er að stöðva stóran hluta skurðaðgerða tímabundið og nota þau legurými fyrir fólk af bráðamóttökunni.“