Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir sexmenningum sem ákærð voru fyrir að flytja til landsins 5,8 kíló af metamfetamínkristöllum. Í héraði voru fimm dæmd sek en einn sýknaður. Sigurður Kristinsson hlaut þyngsta dóminn, átta ára fangelsi. Agurim Xixa hlaut fimm og hálfs árs dóm, Baldur Þór Sigurðsson fjögurra ára fangelsi og Sigfús Bergmann Svavarsson þriggja og hálfs árs dóm. Elsa Ruth Róbertsdóttir fékk tíu mánaða dóm en fullnustu hans er frestað haldi hún almennt skilorð í þrjú ár. Fluttu efnin frá Rotterdam til Þorlákshafnar Hin dæmdu fluttu efnin inn í bifreið með flutningaskipinu Mykinesi frá Rotterdam í Hollandi til Þorlákshafnar 11. október 2024. Lögregla lagði hald á fíkniefnin og skipti þeim út fyrir gerviefni áður en bifreiðin var flutt til Reykjavíkur. Í Reykjavík reyndi einn sakborninganna, Agurim, að fjarlægja efnin úr bifreiðinni en tókst það ekki. Daginn eftir fór hann með bifreiðina, ásamt Sigurði Kristinssyni, í hesthúsahverfi í Víðidal þar sem Sigurður fjarlægði efnin. Agurim og Elsa Ruth Róbertsdóttir báru efnin inn í nærliggjandi hesthús. Fyrir héraðsdómi kom fram að lögreglu hefðu borist upplýsingar í september 2024 um að til stæði að flytja fíkniefnin til landsins í bifreið. Sigurður og Baldur Þór Sigurðsson voru nafngreindir og sagðir standa að innflutningnum. Baldur Þór hafði farið utan ásamt Sigfúsi Bergmann Svavarssyni nokkrum dögum áður. Þeir fóru meðal annars til Amsterdam í Hollandi. Í bifreiðinni sem þeir fluttu til landsins skömmu síðar fundu tollverðir pakkningar í olíupönnum. Nokkrum pakkningum hafði auk þess verið troðið í vélbúnað bifreiðarinnar.