Sjóvá skilar ríflega helmingi minni hagnaði

Tryggingafélagið Sjóvá hagnaðist um rúma 2 milljarða króna árið 2025, þar af um 1,4 milljarða á síðasta ársfjórðungi. Það er meira en helmingi minni hagnaður en árið 2024. Þá var hagnaður 4,2 milljarðar króna yfir árið og 2,8 milljarðar síðasta ársfjórðunginn. Í ársuppgjöri Sjóvár kemur fram að hagnaður af vátryggingarsamningum fyrir skatta á síðasta ári hafi verið tæpir 2,6 milljarðar króna, samanborið við 1,3 milljarða árið 2024. Þá hafi hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta árið 2025 verið 448 milljónir króna. „Tjónaþróun var hagfelld á árinu, sér í lagi í ljósi stórtjónaþróunar en eitt stórtjón féll til á árinu samanborið við sex stærri brunatjón á árinu 2024 og útskýrir stórbætta afkomu vátryggingasamninga á milli ára,“ er haft eftir Hermanni Björnssyni, forstjóra Sjóvár, í ársuppgjörinu. Minni tekjuvöxtur skýrist meðal annars af aukinni samkeppni Minni hagnaður á síðasta ári en 2024 skýrist að miklu leyti af minni hagnaði af fjárfestingarstarfsemi. Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi var fyrir skatt, árið 2024, 3,4 milljarðar króna, eða um 3 milljörðum meiri en 2025. Ávöxtun fjárfestingareigna var 9,4% árið 2024 en aðeins 3,7% á síðasta ári – sem er verulega undir væntingum til lengri tíma litið. „Rekstrarniðurstaða ársins 2025 endurspeglar afar sterkan grunnrekstur félagsins í breyttu landslagi á vátryggingamarkaði. Tekjuvöxtur er ekki jafn mikill og síðustu ár sem skýrist bæði af aukinni samkeppni á vátryggingamarkaði og minni aukningu í umsvifum viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði á milli ára í takt við þróunina í hagkerfinu,“ er haft eftir Hermanni. Árið 2026 er gert ráð fyrir að afkoma Sjóvár af vátryggingarsamningum verði um 1,8-2,5 milljarðar króna. Ekki eru birtar spár fyrir afkomu af fjárfestingarstarfsemi félagsins. Áætlanir gera þó ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% á ári til lengri tíma.