„Ekki besta liðið í kvöld en við vorum verri en þeir“

ÍR þurfti að sætta sig við 75-78 tap gegn Þór Þorlákshöfn í 17. umferð Bónus deildar karla í kvöld. Þrátt fyrir að hafa minnkað muninn niður í þrjú stig á lokamínútu leiksins tókst ÍR-ingum ekki að fylgja endurkomunni eftir.