Þórir Guðmundur Þorbjarnarson.Rúv / Mummi Lú KR hefur nú unnið átta leiki í röð í efstu deild karla í körfubolta. Liðið vann Álftanes 87-80 í kvöld er nú í 6. sæti með 20 stig en Álftanes er í 8. sæti með 14 stig. KR gaf í undir lokin eftir nokkuð jafnan leik. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fór fyrir KR-ingum með 19 stig, sex fráköst og fjórar stoðsendingar. Þá unnu Valsmenn 17 stiga sigur gegn botnliði ÍA. Valur er með 22 stig í fjórða sæti en nýliðar ÍA verma botnsætið með sex stig..