Aron í leik með FH á síðasta tímabili.RÚV / Mummi Lú Aron Pálmarsson var á hliðarlínunni í fyrsta leik sínum í þjálfarateymi FH í efstu deild karla í handbolta í kvöld. Liðsmenn FH unnu endurkomusigur gegn Selfoss en liðið vann lokakaflann með fimm mörkum og að lokum þriggja marka sigur, 33-30. Selfyssingar leiddu 27-25 þegar skammt var eftir en þá gáfu FH-ingar í. FH er í öðru sæti deildarinnar en Selfoss í áttunda sæti.