Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn
Eftir fyrstu prufukeyrslur á mikið breyttum Formúlu 1 bíl hefur fjórfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen látið óánægju sína í ljós. Hann segir nýja Red Bull bílinn ekki skemmtilegan og allt of ólíkan fyrri árgerðum.