Fuglar og menn heimsfrumsýnd á CPH:DOX

„Þetta er náttúrulega bara óskabyrjun fyrir myndina,“ segir Ingvar Þórðarson, framleiðandi og einn þriggja leikstjóra heimildarmyndarinnar Fuglar og menn sem heimsfrumsýnd verður á heimildarmyndahátíðinni CPH:DOX 13. mars.