Anila Bisha, albönsk leikkona, hefur kært albanska ríkið fyrir að stela persónueinkennum sínum og nota þau til að búa til svokallaðan „gervigreindarráðherra“. TVP World greinir frá. Edi Rama, forsætisráðherra Albaníu, kynnti landsmenn sína fyrir gervigreindarspjallmenninu Diellu í september. Diella er klædd í hefðbundinn albanskan klæðnað en henni er ætlað að hjálpa borgurum og fyrirtækjum að rata um vefsíður hins opinbera og draga úr skriffinsku. Persónueinkenni Bisha, andlit hennar og rödd, voru notuð til að búa til spjallmennið Diellu. Bisha segist hins vegar aldrei hafa gefið leyfi fyrir því að persóna hennar yrði notuð í „hlutverki ráðherra“. Spjallmennið ávarpaði albanska þingið Bisha segist hafa skrifað undir samning sem heimili albönsku ríkisstjórninni að nota persónueinkenni hennar til loka ársins 2025 og þá aðeins sem stafrænn aðstoðarmaður á opinberu vefsvæði sem veitir netþjónustu til borgara. Andmæli Bisha við notkun á einkennum sínum jukust eftir að tölvugerð útgáfa af henni ávarpaði albanska þingið í september í myndbandi sem stjórnvöld bjuggu til. Í myndskeiðinu birtist gervigreindarpersóna með útlit Bisha og sagðist ekki komin til að skipta öðru fólki út. Sóttu um einkarétt á útliti Bisha Leikkonan segir stofnunina sem bjó til Diellu, the National Agency for Information Society í Albaníu, hafa sótt um einkarétt á útliti hennar og rödd án þess að hafa samband við hana. Bisha segir það ógna lífsviðurværi hennar. Albanska leikkonan lagði fram kæru hjá stjórnsýsludómstólum fyrr í vikunni. Hún krefst þess að notkun á útliti hennar verði stöðvuð. Þá segist Bisha hafa leitað til embættismanna til að leysa málið friðsamlega en ekki fengið svar. Talsmaður albönsku ríkisstjórnarinnar, Manjola Hasa, segir kæruna þvælu og að yfirvöld fagni því að leysa málið fyrir dómstólum.