Bandaríkin draga úr hömlum á losun gróðurhúsalofttegunda

Donald Trump Bandaríkjaforseti afturkallaði í dag vísindalega niðurstöðu Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna, EPA, um að almenningi stafi ógn af losun gróðurhúsalofttegunda. Hún hefur verið notuð til grundvallar bandarísku regluverki sem miðar að því að draga úr hnattrænni hlýnun. Afturköllunin markar stærstu breytingu Trumps á loftslagsstefnu Bandaríkjanna. Samhliða henni voru felldar niður allar kvaðir er varða losun gróðurhúsalofttegunda frá bílum í Bandaríkjunum. Þá setur afturköllunin meira loftslagsregluverk í uppnám, þar á meðal reglur um losun koltvísýrings frá raforkuverum og um metanleka hjá olíu- og gasframleiðendum. Gert er ráð fyrir að lagalegar áskoranir eigi eftir að fylgja breytingunni. Bandaríkjaforseti segir niðurstöðuna ekki eiga við rök að styðjast Það var niðurstaða Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna árið 2009 að losun gróðurhúsalofttegunda í lofthjúp jarðar ógni heilsu almennings og velferð núverandi og komandi kynslóða. Þá var niðurstaðan einnig sú að ný vélknúin ökutæki og nýjar vélar í ökutækjum stuðli að aukinni losun gróðurhúsalofttegunda. „Þessi niðurstaða hafði enga stoð í staðreyndum, alls enga, og enga stoð í lögum,“ sagði Trump á viðburði í Hvíta húsinu í dag. Hann gerði lítið úr áhyggjum af því að afturköllunin gæti kostað mannslíf með versnandi loftslagsbreytingum. Þá ítrekaði hann þá skoðun sína að hlýnun jarðar væri ekki af mannavöldum. „Þetta var allt lygi, ein stór svikamylla,“ sagði Trump. Ríkisstjórn Bandaríkjanna segir afturköllunina einnig sparnaðarráðstöfun. Það eigi eftir að skila meira en billjón bandaríkjadölum í sparnað að losna undan byrði regluverksins og sömuleiðis eigi verð á nýjum bílum eftir að lækka um þúsundir dala. Afturköllunin hefur mætt gagnrýni frá demókrötum og náttúruverndarsinnum. Umrætt regluverk tók gildi í forsetatíð Baracks Obama. Fyrrum forsetinn tjáði sig um breytinguna í dag. „Við verðum minna örugg, minna heilbrigð og í verri stöðu til að berjast gegn hnattrænni hlýnun – allt í skyni þess að jarðefnaeldsneytisiðnaðurinn geti grætt enn meiri peninga,“ sagði Obama.