Fyrsta lithíumnámuvinnsla sinnar tegundar í Evrópu tekin í notkun

Fyrsta lithíumnámuvinnsla sinnar tegundar í Evrópu hófst í Syväjärvi -námunni í Vestur- Finnlandi í gær þegar námufyrirtækið Keliber sprengdi formlega fyrstu sprenginguna í námunni að viðstöddum gestum og blaðamönnum. Lithíum úr námunni verður nýtt til framleiðslu rafhlaða fyrir farsíma, rafmagnstannbursta, rafmagnsbíl og sem varaorkubirgðir fyrir lestarkerfi. Mikil eftirspurn er eftir lithium á heimsvísu og er framleiðslunni ætlað að draga úr þörf á innflutningi frá Kína. Syväjärvi-náman er liggur innan þriggja sveitarfélaga og námuvinnslan mun skapa allt að 350 störf. Talið er að námubyggðirnar muni endast í átján ár, en Keliber ráðgerir að opna sex önnur námusvæði í Mið-Ostrobothnia-héraði í Vestur-Finnlandi. Finnska ríkisútvarpið greinir svo frá.