Long vonast eftir öðru tækifæri hjá Íslendingum

Sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í stöðu sendiherra á Íslandi, William Long, baðst afsökunar á ummælum sínum um að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna þegar hann kom fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins í gær. Long kom fyrir nefndina og flutti yfirlýsingu um tilnefningu sína sem sendiherra og greindi frá áherslum sínum, ef til þess kæmi að hann yrði staðfestur sendiherra. Öldungadeildarþingmaðurinn og demókratinn Jeanne Shaheen spurði Long út í ummælin og áréttaði að svona tegund af gríni væri ekki viðeigandi þegar einstaklingur kæmi til greina sem sendiherra Bandaríkjanna. Svona grín þætti öðrum ekki endilega fyndið og það væri að berast frá Íslandi að fólk hefði áhyggjur af því að hann hefði látið þessi ummæli falla sem tilnefndur sendiherra. Long vafðist tunga um tönn í fyrstu í svari sínu en sagði svo: „Þetta var þriggja manna tal. Einhver sagði eitthvað og annar sagði annað, og já, ég bætti þessu við með 52. ríkið sem var algerlega óviðeigandi en það var ekki eitthvað sem ég sagði sem alvarleg yfirlýsing. Þegar svo Arctic news hringdi í mig daginn eftir og spurði mig út í þetta sagði ég að það hefði engin alvara legið að baki og ég baðst afsökunar á því ef þetta hefði móðgað einhvern og það er allt sem ég hef um þetta að segja.“ Hann bætti svo við að hann vonaðist eftir því að Íslendingar myndu gefa honum annað tækifæri. Long var áður þingmaður Repúblikana fyrir hönd Missouri og starfaði áður sem uppboðshaldari. Nýlega starfaði hann sem ríkisskattstjóri Bandaríkjanna en Bandaríkjaforseti rak hann eftir aðeins tvo mánuði í starfi og tilnefndi hann samdægurs sem sendiherra við Ísland. Tilnefning hans hefur ekki verið staðfest, en það er í höndum öldungadeildar Bandaríkjaþings.