Líkams­á­rásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur útköllum vegna líkamsárása í gærkvöldi eða nótt. Önnur átti sér stað í Hafnarfirði en í hin í póstnúmerinu 112. Þar var kona í annarlegu ástandi handtekin í tengslum við rannsókn málsins.