ÓL dagur 8: Dagur keppir í skíðagöngu

Alls eru sjö beinar útsendingar frá Vetrarólympíuleikum í dag. Þar ber helst að nefna að Dagur Benediktsson keppir í 10 km skíðagöngu karla klukkan 10:50. Alls eru fimm medalíuviðburðir á dagskrá auk tveggja leikja í íshokkí. Það er óhætt að mæla með 10 km sprettgöngu karla í skíðaskotfimi í lýsingu Gunnars Birgissonar klukkan 12:50. Ólympíukvöld verður næst á dagskrá á mánudagskvöld.