Það ræðst á sunnudaginn hvort það verður Ingibjörg Isaksen eða Lilja Dögg Alfreðsdóttir sem fær það verkefni að reisa Framsóknarflokkinn upp úr dýpstu krísu sem flokkurinn hefur lent í. Lilja þykir sigurstranglegri en viðmælendur innan flokksins segja að Ingibjörg hafi sótt mjög í sig veðrið á síðustu dögum. Úrslitin ráðast á því hverjir mæta á flokksþingið sem hefst á Hilton hóteli í Reykjavík á morgun. Flokksþingið verður líka svanasöngur Sigurðar Inga Jóhannssonar á formannsstóli. Hann hefur leitt flokkinn í tíu ár og þótt hann hafi almennt þótt farsæll og almennt óumdeildur formaður, þar til undir það síðasta, skilur hann við flokkinn í djúpum dal. Framsókn fékk einungis 7,8 prósent atkvæða í síðustu alþingiskosningum og fimm menn kjörna. Það er versti árangur í sögu flokksins. Flokksmenn ákveða um helgina hvor frambjóðandinn getur snúið taflinu við. Hefð fyrir dramatík og uppákomum Formannsframboði fylgja alltaf átök á milli fylkinga og formannsslagurinn í ár er engin undantekning, eins og vikið er að neðar. Síðustu formannsslagir Framsóknar voru heldur betur eftirminnilegir, þó á ólíkan hátt. Árið 2009 kepptu Höskuldur Þórhallsson, Páll Magnússon og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um formannsstólinn. Páll heltist úr lestinni eftir fyrstu umferð kjörsins og þegar búið var að telja upp úr kjörkössunum í síðari umferðinni lýsti Haukur Ingibergsson, formaður kjörstjórnar, Höskuld réttkjörinn formann Framsóknar. Í þann mund sem Höskuldur var að fara að flytja sigurræðu sína var honum snúið við og gert var stutt hlé á fundinum. Því næst kom Haukur aftur upp í pontu og lýsti Sigmund Davíð réttkjörinn formann. Lilja Alfreðsdóttir er almennt talin sigurstranglegri í formannskjöri Framsóknarflokksins um helgina. Framsóknarmenn eru þó á því að slagurinn verði jafnari en útlit var fyrir. Sigmundur Davíð vann glæsilegan kosningasigur í þingkosningunum 2014 og leiddi ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum þar til Wintris-málið dúkkaði upp. Það varð til þess að Sigmundur Davíð vék úr stóli forsætisráðherra og þingkosningum var flýtt til haustsins 2016. Sigmundur Davíð hélt formannsstólnum en ólgan í flokknum kraumaði og ákvað Sigurður Ingi, þá orðinn forsætisráðherra, að skora formann sinn á hólm á flokksþingi í október. Þar hafði Sigurður Ingi betur, með aðeins 40 atkvæðum. Hinn fallni formaður rauk á dyr, sagði sig úr flokknum og stofnaði Miðflokkinn. Þótt Framsókn hafi unnið góðan sigur í þingkosningunum 2021 má færa fyrir því rök að flokkurinn hafi aldrei jafnað sig eftir klofninginn 2016 þar sem fjölmargir rótgrónir Framsóknarmenn fylgdu Sigmundi Davíð yfir í Miðflokkinn. Barnaleikur miðað við 2016 Það hefur vissulega verið tekist á í slag Ingibjargar og Lilju og hefur eitt og annað ratað upp á yfirborðið. Framsóknarfélag Akureyrar kærði umtalað „búbbluteiti“ á vegum Kvenna í Framsókn þar sem aðalgestur kvöldsins var Lilja Alfreðsdóttir. Þótti stuðningsmönnum Ingibjargar óeðlilegt að félag innan Framsóknar dragi augljóslega taum annars frambjóðandands svo skömmu fyrir flokksþing. Þá hafa borist allnokkrar kærur vegna þess hvernig staðið var að vali á flokksþingsfulltrúum á þingið. Að baki liggur nokkuð flókið ferli. Tæplega 300 miðstjórnarmenn fá sjálfkrafa atkvæðisrétt á flokksþingi og svo eru það framsóknarfélögin um allt land sem senda fulltrúa með atkvæðisrétt á þingið. Þar eru á sjötta hundrað atkvæði í boði. Frambjóðendurnir hafa háð harða baráttu um þessa fulltrúa og þykir stuðningsmönnum Ingibjargar að framboð Lilju hafi farið fullhart og jafnvel ódrengilega fram um að verða sér úti um þessi atkvæði. Eða í það minnsta tryggja að stuðningsmenn Ingibjargar komist ekki að. Hafa rótgrónir Framsóknarmenn vaknað upp við þann vonda draum að eiga ekki atkvæðarétt á þinginu á meðan fólk með lítil sem engin tengsl við flokkinn sæki þingið með kjörbréf í vasanum. Þótt oft falli þung orð í hita leiksins eru viðmælendur fréttastofu flestir sammála um að slagur Lilju og Ingibjargar sé frekar í lágstemmdari kantinum. „Þetta er barnaleikur miðað við flokksþingið 2016,“ eins og einn orðaði það. Kærurnar sem minnst var á að ofan hafa ekki orðið til neinna aðgerða þannig að starfað var innan ramma laganna þótt deila megi um hversu mikið samvinnuhugsjónin hefur verið höfð að leiðarljósi. Dýr pakki gæti gert útslagið „Það fer eftir því hverjir mæta,” voru svör flestra viðmælenda þegar þeir voru beðnir um að spá í úrslitin. Um 850 eru á kjörskrá en framboðin telja að það þurfi 350 til 400 atkvæði til að vinna. Hvert einasta atkvæði skiptir máli og það vita báðir frambjóðendur sem hafa eytt síðustu dögunum í símanum. Flestir eru á því að Lilja sé almennt sigurstranglegri en að dregið hafi mjög saman á allra síðustu dögum. Lilja hefur verið duglegri að smala og býr að því að hafa lengi undirbúið formannsframboð. Lilja á vísan stuðning á suðvesturhorninu – í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Kraganum. Hún fékk afdráttarlausa áskorun um formannsframboð frá Willum Þór Þórssyni sem hefur mikla vigt innan flokksins og var af mörgum talinn álitlegasti kosturinn. Bandalög vega þungt þótt einhverjir hafi nefnt að svo afgerandi stuðningsyfirlýsing hafi farið öfugt ofan í einhverja. Ingibjörg á öfluga stuðningsmenn í Eyjafirði og á Suðurlandi, kjördæmi fráfarandi formanns. Önnur kjördæmi skipast á milli fylkinga og því gæti það ráðið úrslitum hverjir leggja leið sína á þingið. Þar eru alls konar breytur. Þannig er alls ekkert víst að fulltrúar í liði Lilju sem notaðir voru til að valda fulltrúa Ingibjargar skili sér á kjörstað. Verðið gæti sömuleiðis haft áhrif. Margir hafa nefnt að það sé mikill pakki, einkum fyrir framsóknarmenn af landsbyggðinni, að sækja þingið. Aðgangurinn kostar 15 þúsund krónur og svo þarf fólk að verða sér úti um gistingu sem kostar á bilinu 25-35 þúsund krónur nóttin. Dræmari aðsókn af landsbyggðinni yrði klárlega Lilju í hag en á móti kemur að veðurspáin er með ágætum. Kosið um persónur og gegn Það er ekki mikill munur á stefnu Lilju og Ingibjargar. Samhljómur þeirra kom glögglega í ljós í kappræðum ungra Framsóknarmanna í fyrrakvöld. Lilja hefur djúpa þekkingu á efnahags- og utanríkismálum og hefur óhikað flaggað því í kosningabaráttunni. Á sama tíma er Ingibjörg sögð vera í betri tengslum við raunhagkerfið og hefur verið talsmaður flokksins í heilbrigðis- og menntamálum. Flokksmenn eru fyrst og fremst að kjósa persónur. Sumir jafnvel að kjósa gegn þeirri persónu sem þeir vilja ekki sjá sem formann. Einhverjir óttast að Lilja komi til með að færa flokkinn lengra til hægri og nær Miðflokknum en sjálf aftekur hún það með öllu og segist ætla að reka harða miðjustefnu. Þar séu tækifærin og nærtækt að líta til Sjálfstæðisflokksins sem hefur elt Miðflokkinn til hægri með litlum og raunar neikvæðum árangri. Málflutningur Framsóknarflokksins í stjórnarandstöðu hefur enda verið töluvert frábrugðinn hinum stjórnarandstöðuflokkunum. Hann hefur ekki rekið jafn harða stjórnarandstöðu og verið opnari fyrir málamiðlunum en Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur. Ólíklegt er að það breytist við formannsskiptin. Þræta fyrir að vera í forystu Ofangreindar kappræður ungra Framsóknarmanna drógu ekki fram skoðanaágreining en áhugaverðasti kaflinn birtist í afneitunum bæði Lilju og Ingibjargar á að tilheyra forystu Framsóknar þegar talið barst að ábyrgð á dræmu gengi flokksins. Ingibjörg minnti á að Lilja hafi verið varaformaður frá árinu í áratug, setið í ríkisstjórn í átta ár og frá því hún hafi dottið út af þingi í hitteðfyrra hafi hún aðeins setið einn þingflokksfund þótt hún í krafti stöðu sinnar hafi rétt til að sitja þá. Ingibjörg segist í samtölum við grasrótina fundið fyrir ákalli um breytingar í forystunni og hún sé fulltrúi breytinga. Á móti benti Lilja á að Ingibjörg hafi verið þingflokksformaður í fimm ár og hefði því mikið að segja um málflutning Framsóknar út á við. Vandinn að vera utan þings Eftirleikurinn er ekki síður áhugaverður en sjálf úrslitin. Gengur flokkurinn samhentur af flokksþingi eða skilur baráttan eftir sig gjá milli fylkinga? Auðvelt er að horfa til Sjálfstæðisflokksins sem engan veginn hefur náð vopnum sínum eftir formannskjörið og lítill samhljómur er innan þingflokksins. Það er ekki sjálfgefið að Lilja nái taki á þingflokknum þótt hún verði formaður. Það getur reynst erfitt að stýra flokknum af hliðarlínunni og hafa ekki aðgengi að þingsal, sérstaklega þegar þingflokkurinn er ekki allur í þínu bandi. Sjálf hefur Lilja gert lítið úr þessu, hún geti eftir sem áður setið þingflokksfundi og utan þings geti hún einbeitt sér að því að byggja upp flokkinn og tekið virkari þátt í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfur þingflokkurinn verður veikari þar sem flokkurinn kemur til með að missa starfsmann. Samkvæmt þingsköpum hefur „formaður flokks sem situr á Alþingi“ rétt til að ráða sér aðstoðarmann en það á ekki við um Lilju. Birkir Jón Jónsson hefur aðstoðað Sigurð Inga en lætur af störfum um leið og Sigurður Ingi hættir sem formaður. Það getur munað um minna í litlum þingflokki þótt smáatriði sem þetta komi ekki til með að ráða úrslitum. Framsóknarmenn eru þó almennt á því að vopnin verði lögð niður. „Það skiptir máli hvað gerist á mánudaginn,“ sagði einn Framsóknarmaðurinn. Flokksmenn verði einfaldlega að snúa bökum saman enda stutt í kosningar. Þess utan sé aldrei að vita hvenær næstu alþingiskosningar verða. Óvænt mótframboð í varaformanninn? Það hefur ekki farið hátt en það er einnig verið að kjósa um eftirmann Lilju í embætti varaformanns. Enn sem komið er hefur aðeins einn lýst yfir áhuga, Stefán Vagn Stefánsson þingmaður úr Norðvesturkjördæmi. Hægt er að bjóða sig fram að kosningu og því ekki útilokað að einhver bjóði sig fram á lokasprettinum. Stefán Vagn hefur engu að síður háð kosningabaráttu og ferðast um landið til að kynna sig og sínar áherslur. Talað hefur verið um að nauðsynlegt sé að rödd sveitarstjórnarmanna fái rödd í forystunni, ekki síst þegar kosningar til sveitarstjórna eru handan við hornið. En kosningarnar geta líka virkað öfugt því það er áhætta fólgin í því að fara inn í kosningar með tap í varaformannsslag á bakinu. Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður var orðaður við framboð en er sagður hafa ákveðið að taka ekki slaginn og nafn Valdimars Víðissonar, bæjarstjóra í Hafnarfirði, hefur einnig verið nefnt. Ólíklegt er að Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir fái mótframboð í embætti ritara enda ekki liðið nema hálft ár síðan hún fékk kosningu í það embætti.