Kuldaboli fer á kreik um allt land og bítur fast, sérstaklega í innsveitum þar sem frostið getur farið í allt að fimmtán stig. Þetta er í boði hæðar yfir Grænlandi og lægðasvæðis við Noreg sem beina köldu heimskautalofti inn á landið. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðlæg eða breytileg átt í dag, víða þrír til tíu metrar á sekúndu. Él um landið norðanvert, og einnig við suðausturströndina fram eftir degi, en léttskýjað suðvestantil. Frost þrjú til fimmtán stig, kaldast inn til landsins. Austlæg átt, fimm til þrettán, á morgun, en hægviðri um landið norðaustanvert. Dálítil él suðaustan- og austantil, annars þurrt að mestu. Áfram kalt, en dregur úr frosti sunnanlands. Hvessir allra syðst annað kvöld. Veðurfræðingur á vakt á Veðurstofunni sendi okkur þennan pistil: Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði við Noreg beina enn til okkar köldu heimskautalofti. Áttin er því norðlæg eða breytileg en vindur verður þó ekki tiltakanlega mikill í dag, víða gola eða kaldi. Éljagangur um landið norðanvert og einnig við suðausturströndina fram eftir degi, en léttskýjað suðvestantil. Frost 3 til 15 stig, kaldast inn til landsins. Austlæg átt á morgun, yfirleitt 5-13 m/s, en hægviðri um landið norðaustanvert. Austanáttinni fylgja dálítil él suðaustan- og austantil, en í öðrum landshlutum verður líklega þurrt að mestu. Áfram kalt, en dregur úr frosti sunnanlands. Annað kvöld bætir í vind allra syðst á landinu og þar má búast við allhvössum eða hvössum vindi fram yfir hádegi á sunnudag. Í öðrum landshlutum er hins vegar útlit fyrir tíðindalítið en kalt veður á sunnudaginn, áfram dálítil él fyrir austan, en bjart að mestu á Suðvestur- og Vesturlandi.