Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði við Noreg beina enn köldu heimskautalofti til landsins. Áttin er því norðlæg eða breytileg en vindur verður þó ekki tiltakanlega mikill í dag, þar sem víða má reikna með golu eða kalda.