Borgin selur Toppstöðina

Kaupsamningur Toppstöðvarinnar ehf. við Reykjavíkurborg um kaup á Toppstöðinni í Elliðaárdal var samþykktur á fundi borgarstjórnar í gær. Kauptilboð félagsins hljóðaði upp á 420 milljónir króna en var bundið við verðlagsvísitölu. Það greiðir því 440 milljónir fyrir húsið nú þegar fjármögnun er lokið. Þegar samið var um söluna tilkynnti Reykjavíkurborg að þar ætti að rísa miðstöð útivistar sem gæti hýst jaðargreinar og aðra starfsemi sem gæti stutt við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal. Meðal kvaða sem er að finna í kaupsamningnum er forkaupsréttur Reykjavíkurborgar að eigninni og bann við þinglýsingu leigusamninga sem eru í andstöðu við lýðheilsustefnu Reykjavíkurborgar. Kaupandinn verður að afla allra leyfa fyrir framkvæmdum á eigninni og þar á meðal frá Fiskistofu vegna ákvæða í lögum um lax- og silungsveiði.