Á­tján ára Ís­lendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“

Hinn átján ára gamli Ronald Bjarki Mánason, hefur unnið hvert alþjóðalega mótið á fætur öðru í hnefaleikum og vakið verðskuldaða athygli þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað að stunda íþróttina fyrir þremur árum síðan. Þjálfari Ronalds segir hann draum hvers þjálfara og telur drenginn unga geta farið alla leið.