Trúnaður ríki um samninga Kefla­víkur­flug­vallar

Trúnaður ríkir um innihald samninga sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila í flugstöðinni og sökum þessa getur Isavia ekki veitt upplýsingar um það hvaða skilyrði eru fyrir hendi í samningi flugvallarins við fyrirtæki sem rekur fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Hins vegar eru þeir samningar sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila þess eðlis að þeir eru jafnan tengdir við veltu. Af því má ráða að Isavia fái meira upp úr krafsinu eftir því sem rekstraraðilar í flugstöðinni fá meira í kassann. Það tók níu mánuði að fá svör frá Isavia um samning vegna fjármálaþjónustu á flugvöllunum, sem var á þá leið að ekki væri unnt að veita umbeðnar upplýsingar.