Fyrsta liþínnáma sinnar tegundar í Evrópu tekin í notkun

Fyrsta liþínnámuvinnsla sinnar tegundar í Evrópu hófst í Syväjärvi-námunni í Vestur- Finnlandi í gær þegar námufyrirtækið Keliber sprengdi formlega fyrstu sprengjuna í námunni að viðstöddum gestum og blaðamönnum. Liþín úr námunni verður nýtt til að framleiða rafhlöður fyrir farsíma, rafmagnstannbursta og rafbíla og fyrir varaorkubirgðir fyrir lestarkerfi. Mikil eftirspurn er eftir liþíni á heimsvísu og er framleiðslunni ætlað að draga úr þörf á innflutningi frá Kína. Syväjärvi-náman er innan þriggja sveitarfélaga og námuvinnslan á að skapa allt að 350 störf. Talið er að náman muni endast í 18 ár. Keliber ráðgerir að opna sex námur í Mið-Austurbotni í Vestur-Finnlandi. Finnska ríkisútvarpið greinir svo frá.