Hvernig mun framtíð Evrópu og Bandaríkjanna líta út?

„Evrópa er okkur mikilvæg,“ sagði Marco Rubio þegar hann lagði af stað frá Bandaríkjunum til Evrópu í gær til að vera viðstaddur öryggisráðstefnuna í München, sem hefst í dag. Hann bætti við að tengslin við Evrópu væru djúp: „Framtíð okkar hefur alltaf verið samtvinnuð og mun verða það áfram.“